Orku- og vísindadagur með 700 háskólanemum

28. september 2026

Á dögunum hélt Ljósleiðarinn og systurfyrirtæki hans, Veitur, ON, Carbfix með móðurfélagi sínu Orkuveitunni, sinn árlega Orku- og vísindadag. Þennan dag er um 700 háskólanemum boðið í heimsókn til fyrirtækjanna í Elliðaárstöð þar sem nemendurnir geta kynnt sér þá fjölbreyttu starfsemi sem fyrirtækin bjóða upp á. Innan fyrirtækjanna leynast gríðarmörg og fjölbreytt tækifæri en þetta er ekki síður mikilvægur vettvangur fyrir okkar fyrirtæki til að fá innsýn í áhugasvið nemendanna og hvernig við getum verið áhugaverður vinnustaður fyrir þetta framtíðar starfsfólk.

Góður hópur sérfræðinga frá Ljósleiðaranum stóð vaktina, hitti nemendurna og átti við þau skemmtileg samtöl um vinnustaðinn, verkefnin og framtíðina. Nemendurnir fengu innsýn í tæknina á bakvið Ljósleiðarann og gátu skemmt sér yfir að skora á hvort annað í Counter Strike 2 en Ljósleiðarinn er aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildar RÍSÍ þar sem keppt er í CS2.

Það var virkilega gaman að hitta alla þessa nemendur og fá tækifærið til að kynna fyrir þeim hvernig Ljósleiðarinn byggir upp og rekur stafræna innviði gerir þannig allt mögulegt mögulegt fyrir íslenskt samfélag. Takk fyrir góðan dag og skemmtilegt spjall.

 

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.