Ljósleiðaratæknin kynnt fyrir Tækniskólanemum

29. september 2026

Á dögunum tók Ljósleiðarinn þátt í Tækniskóladeginum, en þá taka fyrirtæki á móti nemendum í skólanum sem fá tækifæri til að kynna sér starfsemi þeirra og tengja starfsemi fyrirtækjanna við námið sem þau stunda og geta þannig eflt tengsl sín við atvinnulífið.

Ljósleiðarinn tók á móti hóp nemenda í svokölluðu Ljósleiðaraherbergi í Heimili Veitna í Elliðaárstöð. Þar hittu nemendurnir sérfræðinga Ljósleiðarans sem sögðu stuttlega frá starfsemi fyrirtækisins og kenndu svo og leyfðu nemendunum að spreyta sig í að splæsa ljósleiðarastrengi. Krakkarnir sýndu tækninni mjög mikinn áhuga og spurðu margra spurninga og starfsfólk okkar átti mörg virkilega góð samtöl við nemendurna.

Tækniskóladagurinn er mikilvægur vettvangur fyrir Ljósleiðarann, þar sem við fáum tækifæri til að kynna okkar fjölbreyttu starfsemi fyrir nemendum og við fáum um leið innsýn í nám og áhugasvið þeirra innan geirans.

Við þökkum kærlega fyrir góðan dag, áhugasama nemendur og skemmtileg samtöl.

 

 

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.